sæl veri fólkið.
mér fannst tilvalið að brydda upp á smá umræðum hérna á vefnum.
lá beinast við, þar sem sumarið fer að ganga í garð (ekki nema tja,
tæplega fjórir mánuðir) að spyrja hvað fólk ætlar að taka sér fyrir
hendur í sumarfríinu? en þar sem þetta er ekki eiginlegt, eiginlega
langt frá því að vera eiginlegt, frí, þá endurorða ég spurninguna
og spyr frekar, hvað ætlið þið ykkur að gera í sumar?
ég sjálfur er að fara skrifa bs ritgerð, áætluð úrskrift er svo
8. september. margir spyrja sig, hvað voðalega liggur honum á!
réttmæt spurning. ég get svarað því að mér liggur eiginlega ekkert
á. námið og lífið hérna á bifröst býður svo einstaklega vel upp á
það að drífa þetta af. ég er persónulega að verða kominn með nóg af
því að búa á þessum stað. ég hef þegar ákveðið að færa mig um set
til reykjavíkur og hygg á nám í hr næsta haust, í lögfræði.
ég hef hugsað með sjálfum mér hvernig best sé að koma því í orð
hvernig lífið hér er. niðurstaðan er, að það vantar allt krydd hér
á staðnum. krydd, nú er kjörbúð á staðunum, selja þeir ekki krydd?
jú þeir selja svo sannarlega krydd, ég keypti meira að segja
fiskikrydd um daginn þegar ég var að elda handa strákunum mínum á
matarklúbbnum sem ég er í. þegar ég tala um krydd, þá meina ég
krydd lífsins. það er nú mismunandi eftir manninum hvaða skilning
hann leggur í þetta hugtak sem ég er að vísa í, krydd. ég ætla svo
sem ekkert að útskýra þetta eitthvað nánar, en það er allavega
málið, það vantar allt krydd á place-ið.
getraun: í hvað er verið að vísa í titli þessarar færslu?
verðlaun í boði!
peace out... eða eins og freysinn sagði í kastljósinu í gær, "no
probs, lady!"