'Dust anyone?'

H við hæfi alla ævi!

31.05.2005 23:48:10 / lily

ómaleó ómaleó leó sí sí sí

Háwdí hó sanna hey sanna! Til hamingju með bekkjarsíðUNA, Una er klárlega að standa fyrir sínum stöfum hér. En hvað segiði eruð þið sem þurftuð í próf búin að stand'ykkur með stæl? Anna Rósa kannski með American style.. barammbamm! Allir búnir að láta hanna jakkafötin og kjólana, pússa silvrið fyrir veilsUNA, semja við bakarann og svo framvegis.. ég held ég geti með sanni sagt að ég sé tilbúin bara.. fyrir utan eitt tvö verkefni, en vitiði til ég mun án efa koma of seint í höllina :) Nú spyr ég að lokum, ætlar ekki allur bekkurinn í óvissuferðina?

knus og kram

miss five minutes overisme


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2005 18:53:54 / unag

Tenglar

Ég er búin að setja inn tengla á þær bloggsíður bekkjarfélaga sem mér tókst að hafa uppi á... ef einhver veit um fleiri má endilega setja þær inn ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2005 12:10:46 / geir

Rassgat!!!

æji rassgat, gerði heiðarlega tilraun til að henda inn einhverjum myndum en gafst upp á fyrstu mynd því ég kann sko ekki baun á þetta blog.central..... kannski einhver gæti verið svo góður að leiðbeina mér hvernig í helv. maður setur inn myndir á þessa annars fínu síðu?


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2005 00:54:03 / solveig

Jæja...sæl öllsömul

Úff.....hélt að ég myndi seint byrja á þessu........en allavega bara byrjuð að blogga núna 8) svöl ekki satt!!! Reyndar ekki á minni eigin bloggsíðu en það skiptir ekki öllu.......minn ástkæri bekkur skiptir mig meiru en mitt eigið líf :S

Allavega er ég ótrúlega ánægð með þetta framtak hennar Unu og MA-bekkjarstoltið fyllist lífi og kærleik.......Goooooo UNA

Vona að sem flestir H-arar kommenti á þessa bloggsíðu í framtíðinni

þúsund kossar  XXX Sólveig Ása


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2005 00:13:58 / unag

Sælinú

Jæja, það er klárt mál að ég á mér ekki líf ef ég þarf ekki að taka próf í próftíð... ég sat í góðu yfirlæti fyrir framan tölvuna þegar viðkvæmnin kom upp í mér og ég bjó til eitt stykki bloggsíðu fyrir okkur í 4.H. Vúhú! Ég er sem sagt búin að búa til notendanöfn fyrir ykkur öll þannig að við getum nú vitað hvað allir eru að gera úti í hinum stóra heimi sem bíður víst handan við hornið. Gaman... kannski ég fari að senda ykkur tölvupóst svo einhver annar en ég viti af síðunni...

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 31482
Aðrir bekkir