'Dust anyone?'

H við hæfi alla ævi!

28.08.2005 01:27:42 / kristina

Ólétt.... how?

Kæru bekkjarfélagar... nú þegar tilfinningarótið er í hámarki, aðeins nokkrir klukkutímar í brottför mína af klakanum, ákveð ég að kíkja hér inn og segja nokkur vel valin orð um þennan frábæra bekk, frábæru tíma, frábæru vini og fleira frábært sem mér datt í hug.. þar til ég sá skoðunarkönnunina... Kæru félagar; verðiði sjálf ólétt og verið fegin ef ég sendi ekki heilu munaðarleysingjahælin af illa upp öldum börnum á heimilisfangið ykkar. Lengi lifi pillan - 2 á dag alla ævi!
Ína barnapína


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.08.2005 00:48:14 / geir

útskriftarfarablogg?

man einhver slóðina á síðuna sem var búin til sem svona upplýsingasíða fyrir okkur sem vorum að fara út á krít í fyrra... langar voðalega að skoða hana... bara svona þegar manni leiðist á kvöldin þegar flest allir eru farnir eitthvert annað í heiminn...

kv geir


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2005 18:05:34 / bjarni

What up?

Það er hundleiðinlegt að skrolla niður til að lesa öll þessi 20 comment við síðustu færslu!!

Hvet alla bara til að skrifa nýjar færslur.

Skrifaði þetta líka bara til að sýna lit...

:^) (Þessi er í lit)

segjum það...        ...blessaður

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2005 22:00:51 / unag

Framtíðin er komin...

Jæja, nú er ágústmánuður runninn upp, öllum að óvörum myndi ég halda... þetta sumar ætlar að verða eitthvað styttra en þau sem ég hef áður lifað.

Í tilefni af þessum áfanga langar mig að forvitnast um hvað bíður bekkjarfélaganna á næstunni - er það háskóli (hér, þar eða hvar), málaskóli, sjálfboðastörf eða bara almennt iðjuleysi?

Sjálf mun ég dveljast á Hótel Mömmu fram að áramótum og vinna hér á Akureyri. Svo stefni ég á að halda til Parísar í janúar og fara á frönskunámskeið í Sorbonne :)

Látið nú ljós ykkar skína og svalið forvitni minni ;)

Una


» 24 hafa sagt sína skoðun

03.08.2005 02:31:11 / harpa

Sælar elskurnar mínar

Þetta var nú meiri brilliant hugmyndd þessi bloggsíða. Þegar maður er farin að verða forvitin um hagi fyrrverandi bekkjarfélaga er maður ekki lengi að komast að þeim verðum nú samt að vera aðeins duglegri sé það :) En langaði bara svona að kasta á ykkur kveðju og hefykkur langar til að vita hvað ég verð næsta vetur þá ætti það ekki að koma ykkur á óvart en ég verð á sama gamla staðnum mínum Bautanum. (g´ti svona trúað því að þeir sem eru hér á akureri ættu að vera búin að sjá bautaspjöldin mín haha átti að vera eitt en breytist eitthvað) kær kveðja Harpa

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.08.2005 00:06:22 / annarosa

Kveðjupartý

Hæhæ elskulegu bekkjarsystkin!

Ég er að fara út til Flórída 15.ágúst, sem er tjahh eftir 2 vikur...KRÆST! en já ég ætla að hafa kveðjupartý næsta laugardag, 6.ágúst.

Mig langar að bjóða ykkur öllum að koma! Ég mun gefa nánari upplýsingar um þetta þegar nær dregur, ég vildi bara nefna þetta strax svo að þið færuð nú ekki að bóka ykkur eitthvað annað! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 31483
Aðrir bekkir